Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Gluggi Blue Lagoon verslunarinnar er fallegasti jólaglugginn
Laugardagur 16. desember 2006 kl. 23:14

Gluggi Blue Lagoon verslunarinnar er fallegasti jólaglugginn

Blue Lagoon verslunin að Laugavegi 15 í Reykjavík  hlaut viðurkenningu Þróunarfélags miðborgarinnar fyrir fallegasta jólagluggann í ár. Einar Örn Stefánsson, framkvæmdastjóri félagsins, afhenti Önnu G. Sverrisdóttur, framkvæmdastjóra Bláa Lónsins hf, viðurkenninguna fimmtudaginn 14. desember.

Einar Örn sagði við þetta tækifæri að einfalt og stílhreint útlit jólagluggans hefði vakið athygli dómnefndarinnar. “Glugginn er gott dæmi um einfalda og fallega hönnun og það er okkur ánægjuefni að veita Blue Lagoon versluninni viðurkenninguna í ár.”

Anna sagði viðurkenninguna vera mjög ánægjulega fyrir starfsfólk fyrirtækisins. “Verslunin hefur hlotið mjög góðar viðtökur frá því hún opnaði hér að Laugavegi 15 sl. Sumar og það er sérstaklega ánægjulegt fyrir okkur að hljóta þessa viðurkenningu þróunarfélags miðborgarinnar.  Skreyting gluggans var í höndum Suðurnesjamannsins Ómars Ellertssonar.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024