Glerlistarsýning opnar í Duushúsum

Aðalsteinn Ingólfsson, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands og setur sýninguna upp en um er að ræða þjóðargjöf Svía til Íslendinga og telur um 63 glerlistaverk, bæði steypt og blásin, eftir þekktustu listamenn Svíþjóðar.
„Sýningin miðast eftir hverjum sal fyrir sig,“ að sögn Aðalsteins, „En hér verður hægt að koma inn bróðurpart þeirra verka sem við eigum og það verður gaman að sjá hvernig listaverkin njóta sín í þessum sal. En hann er skemmtilegur í laginu og hliðarbirtan virkar vel á glerlistaverkin.“
Talið er að verðmæti listaverkanna og þeirrar vinnu sem lögð hefur verið í söfnun og umbúnaði þeirra sé á bilinu 25 til 30 milljónir króna.
