Glerborg flytur til Grindavíkur
Hið rótgróna fyrirtæki Glerborg verður flutt til Grindavíkur á næstunni.. Grindavíkingurinn og athafnamaðurinn Vignir Óskarsson hefur ásamt tveimur félögum sínum fest kaup á Glerborg og tekið á leigu húsnæði að Seljabót 7 þar sem bækistöðvar fyrirtækisins verða.
,Glerborg er 37 ára og rótgróið fyrirtæki og hafði aðsetur í Hafnarfirði. Um 40 manns vinna hjá fyrirtækinu. Unnið er að því að endurnýja tækjabúnað og efla sölustarfsemi fyrirtækisins.
Auk hefðbundinngar glerframleiðslu sinnir Glerborg framleiðsu á skrautgleri og speglum, plastgluggum, hurðum og ýmsu fleira.
www.grindavik.is greinir frá þessu.
---
Mynd/grindavik.is - Seljabót 7 en þangað flytur Glerborg fljótlega.