Gleðileg Jól!
Starfsfólk Víkurfrétta óskar lesendum sínum og viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Fréttaþjónusta verður í lágmarki um hátíðirnar, en fréttasíminn, 898-2222, er að sjálfsögðu opinn þeim sem vilja koma ábendingum til fréttastofu.
Á jóladagsmorgun var suðlæg átt, víða 13-20 m/s en hægari vindur SA- og A-lands. Talsverð rigning var vestanlands, súld með suðurströndinni en annars þurrt. Frostlaust var á öllu landinu og hiti mestur 11 stig á nokkrum stöðvum á norðan- og vestanverðu landinu.
Ekki er útlit fyrir að jólin hvítni nokkuð því veðurhorfur við Faxaflóa eru sem hér segir: Suðaustan 13-20 m/s og súld eða rigning. Lægir síðdegis, hægviðri og rigning eða slydda í kvöld og nótt, en aftur hvöss suðaustanátt seint á morgun. Hiti 1 til 10 stig, kaldast í nótt og fyrramálið.