Glæsileg sýning Rauðu örvanna í Keflavík
Breska listflugssveitin Rauðu örvarnar hélt glæsilega flugsýningu í Keflavík um kl. hálf fjögur í dag. Ellefu þotur sveitarinnar flugu oddaflug yfir byggðina í Keflavík og síðan tvo stóra sýningarhringi yfir Keflavíkurflugvelli. Þar var farið í ýmsar slaufur og reyk sleppt eins og sveitinni einni er lagið.Þeir sem til sáu sögðu sýninguna stórfenglega. Sveitin er á leið til Bandaríkjanna en gistir í Keflavík í nótt.
Meðfylgjandi mynd tók Hilmar Bragi af sýningunni yfir Keflavík nú rétt áðan.
Meðfylgjandi mynd tók Hilmar Bragi af sýningunni yfir Keflavík nú rétt áðan.