Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Glæsifloti ók með sjeik um Ásbrú
Mánudagur 18. maí 2009 kl. 09:24

Glæsifloti ók með sjeik um Ásbrú


Það var glæsilegur bílafloti sem ók í bílalest um Ásbrú í Reykjanesbæ síðdegis í gær. Svartir eðalvagnar í fylgd lögreglu fluttu sjeik frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum frá Keflavíkurflugvelli og til höfuðborgarinnar. Sjeikinn geymir einkaþotu sína, Airbus A 320, hjá Suðurflugi og hann og föruneyti hans óku um þjónustuhlið við gömlu Knútsstöð, þar sem Suðurflug hefur aðsetur í dag. Bílalestin ók síðan í lögreglufylgd um Ásbrú og vöktu talsverða eftirtekt á leið sinni niður að Reykjanesbraut.

Utanríkisráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Sheikh Abdullah bin Zayed al-Nahyan, er hér á landi í dag, 18. maí. Hann á fund með Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra  í fjarveru Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra en Össur sækir ráðherrafund EES ríkja í Brussel. Ráðherrann hittir einnig Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra, snæðir hádegisverð í boði forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar og heimsækir Hellisheiðarvirkjun.
 
Frá árinu 2006 hafa Ísland og Sameinuðu arabísku furstadæmin átt samstarf á sviði endurnýjanlegra orkugjafa, meðal annars hafa íslenskir sérfræðingar veitt ráðgjöf í jarðhitamálum, íslenskum námsmönnum býðst nú að sækja nám við Tækniháskóla í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og fjárfestar hafa lýst áhuga á að taka þátt í jarðhitaverkefnum með Íslendingum.

Sameinuðu arabísku furstadæmin eru eitt fjögurra ríkja sem bjóða sig fram til að hýsa höfuðstöðvar IRENA sem verður ný alþjóðleg stofnun um endurnýjanlega orku.



Einkaþota sjeiksins rennir inn á flughlaðið hjá Suðurflugi...



... og bílaflotinn sækir sjeikinn...



... og brunaði með hann í lögreglufylgd í gegnum Ásbrú og til höfuðborgarinnar.


Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024