Fréttir

Glæpasamtök svíkja hugsanlega út lúxusvörur og flugmiða hjá Icelandair
Föstudagur 26. ágúst 2016 kl. 11:08

Glæpasamtök svíkja hugsanlega út lúxusvörur og flugmiða hjá Icelandair

Umfangsmikið fjársvikamál til rannsóknar lögreglu

Grunur liggur á að maður sem hugsanlega tengist erlendum glæpasamtökum hafi ítrekað stundað það að svíkja út flugmiða og lúxusvarning í flugvélum Icelandair með því að notast við stolin greiðslukort. Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar þetta umfangsmikla fjársvikamál sem upp kom  13. ágúst sl. Einn sætir gæsluvarðhaldi vegna málsins.

Málavextir eru með þeim hætti að farþegi sem hefur ítrekað komið til landsins, með flugvélum Icelandair, er grunaður um að hafa greitt fyrir ferðir sínar í gegnum vef Icelandair með stolnum greiðslukortaupplýsingum. Hann er einnig grunaður um að hafa svikið út með sama hætti vörur sem seldar eru um borð í flugvélunum fyrir háar fjárhæðir. Hinn grunaði er talinn tengjast erlendum skipulögðum glæpasamtökum sem hafa það að markmiði að svíkja út dýran lúxusvarning um borð í flugvélunum og selja á götum úti erlendis.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Rannsókn málsins miðar vel en hinn grunaði, sem hefur komið við sögu erlendra lögregluyfirvalda vegna samkonar brota, hefur gengist við brotum sínum að hluta.