Bygg
Bygg

Fréttir

Glænýtt húsnæði við Hafnargötuna
Mánudagur 24. nóvember 2003 kl. 11:21

Glænýtt húsnæði við Hafnargötuna

Verktakafyrirtækið Húsanes reisir 300 fermetra húsnæði á Hafnargötunni, til móts við verslunina 10-11. Í húsinu er gert ráð fyrir verslunar- eða skrifstofuhúsnæði á jarðhæð og íbúðum, en húsið er fjórar hæðir auk jarðhæðar. Í húsinu er kjallari sem nýtist sem geymsluhúsnæði fyrir verslun og íbúðir. Að sögn Halldórs Ragnarssonar framkvæmdastjóra Húsaness eru fjórar 2. herbergja íbúðir, fjórar 3. herbergja og tvær 4. herbergja íbúðir. „Við finnum fyrir töluverðum áhuga og hluti íbúðanna hefur nú þegar verið leigður, en húsið verður tilbúið í febrúar.”
Bílakjarninn
Bílakjarninn