Mánudagur 3. júní 2002 kl. 17:05
Glænýr knattspyrnuvöllur í Grindavík ónýtur?

Talsverð umræða vaknaði eftir leik Grindavíkur og ÍBV í Símadeild karla í knattspyrnu sl. laugardag í varðandi ástand vallarins í Grindavík. Eyjamenn kenndu hrikalegum vallaraðstæðum um tapið og var Njáll Eiðsson þjálfari Eyjamanna öskuillur eftir leikinn og sagði hann í samtali við Sýn að fótbolti snerist um meira en flottar stúkur, það yrði að vera hægt að spila fótbolta á völlunum líka. Fannst honum skrýtið að ekki hefði verið spilað á “gamla" vellinum.Jónas Þórhallsson formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur sagði í samtali við Víkurfréttir að ástæðan fyrir því að ekki hafi verið leikið á “gamla" vellinum væri einfaldlega sú að ekki væri leikheimild á hann vegna ömurlegra aðstæðna fyrir áhorfendur. “Fótboltinn snýst líka um áhorfendur og það veit Njáll. Ef við fáum ekki áhorfendur á leikina koma engir peningar í kassann. Bæði liðin þurftu að spila á þessum velli og því er ekki hægt að nota hann sem afsökun fyrir tapinu ". Að sögn Jónasar voru mistök gerð þegar grasið var lagt sl. sumar. “Þetta gras sem er á vellinum er alltof þunnt og svo er mikill arfi á vellinum sem gerir það að verkum að völlurinn er orðinn eins og kartöflugarður. Grasið sem valið var af sérfræðingi var um helmingi of þunnt."
En vissu menn ekki af þessu fyrr en nú?
“Jú þetta vaknaði upp í fyrrasumar um leið og farið var að spila á vellinum því þá spændist grasið upp. Menn héldu hins vegar að þetta myndi lagast með tímanum en eftir fyrsta leikinn gegn Fram á þessu tímabili sáum við það að völlurinn væri óleikhæfur. Við ætlum okkur að leggja nýtt gras í teigana sem verður eins þykkt og hægt er. Næsti leikur okkar á heimavelli er gegn Fylki 19. júní og erum við að reyna að fá leikheimild á vellinum við hliðina á meðan völlurinn jafnar sig. Það er þó ekki útséð með það hvort við fáum hana þannig að eins og staðan er í dag verðum við að sætta okkur við að spila í kartöflugarðinum".