Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Glæfraakstur undir áhrifum og án réttinda
Mánudagur 3. apríl 2017 kl. 11:39

Glæfraakstur undir áhrifum og án réttinda

Ungur ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af um helgina vegna gruns um fíkniefnaakstur hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Hann hafði ekið glæfralega eftir Reykjanesbraut og var hann færður á lögreglustöð þar sem sýnatökur og skýrslutaka fóru fram. Vegna ungs aldurs ökumannsins var barnaverndarnefnd kunngert um málið. Auk ökumannsins unga hafði lögregla afskipti af öðrum ökumanni sem grunaður var um fíkniefnaakstur og öðrum sem grunaður var um ölvun við aksturinn.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024