Bygg
Bygg

Fréttir

Glæfraakstur á Reykjanesbrautinni
Sunnudagur 17. apríl 2011 kl. 11:01

Glæfraakstur á Reykjanesbrautinni

Ökumaður á þrítugsaldri setti sjálfan sig og vegfarendur í stórhættu á Reykjanesbraut klukkan tíu í gærkvöldi þegar hann sinnti ekki beiðni lögreglu um að stöðva bifreið sína. Vísir.is greinir frá þessu nú í morgun.

Lögreglan var að mæla hraða bifreiða á Reykjanesbrautinni í gær  þegar umræddur ökumaður mældist of hratt hugðist lögreglan sekta hann. En hann gaf þá frekar í og hófst þá um hálftíma eftirför sem endaði í Sandvík á Reykjanesinu, þegar lögreglan náði loks að króa hann af.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra er talið að ökumaðurinn hafi hraðast ekið á annað hundrað kílómetra hraða en nokkrir lögreglubílar skemmdust lítillega í eftirförinni. Hann var handtekinn og gisti fangageymslu í nótt og verður yfirheyrður síðar í dag. Hann er ekki grunaður um akstur undir áhrifum, segir ennfremur í frétt Vísis.