Gjaldtaka í strætó hefst eftir áramót
Reykjanesbær hefur ákveðið að hefja gjaldtöku í strætó frá 1. janúar 2018. Gjaldtaka fer fram í formi árskorta en einnig verður hægt að kaupa einstaka ferðir um borð í strætó. Sala árskortanna hefst 1. desember, en hægt verður að kaupa kortin á Bókasafni Reykjanesbæjar, í Sundmiðstöð við Sunnubraut, Íþróttamiðstöð Njarðvíkur, Rokksafni Íslands í Hljómahöll og á Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Duus Safnahúsum.
	Verðskrá árskorta er sem hér segir:
	Almennt kort 5000 kr.
	Börn 6 til 18 ára 2000 kr.
	Aldraðir og öryrkjar 2000 kr.
	Einstök ferð 300 kr. (hvorki skiptimynt né skiptimiðar í strætisvögnum)

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				