Gjaldskylda tekin upp á endurvinnslustöðvum Kölku
Hjá Kölku - Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. hefur verið tekin ákvörðun um breytingar á gjaldskrám fyrirtækisins sem taka gildi hinn 1. janúar 2012. Endurskoðun á gjaldskrám fyrirtækisins voru síðast gerðar hinn 1. febrúar 2010. Breytingar taka m.a. mið af þróun verðlags og einnig hafa kostnaðaráhrif mismunandi tegunda úrgangsefna verið endurmetin. Gjaldskrám Kölku er nú skipt í fjóra mismunandi flokka sem eru eftirfarandi:
Gjaldskrá fyrir stofnanir og fyrirtæki. Gjaldskrá á endurvinnslustöðvum Kölku í Vogum, Grindavík og Helguvík. Almenn gjaldskrá fyrir spilliefni. Gjaldskrá fyrir spilliefni og önnur skilgreind efni frá verktökum Úrvinnslusjóðs.
Gjaldskrárnar eru birtar á heimasíðu fyrirtækisins, www.kalka.is.
Gjaldskylda á endurvinnslustöðvum
Frá og með 1. janúar 2012 verður tekin upp gjaldskylda á endurvinnslustöðvum Kölku í Vogum, Grindavík og Helguvík fyrir tiltekin úrgangsefni frá heimilum og verður tekið á móti greiðslukortum. Áfram verða þó fjölmargar tilgreindar tegundir úrgangsefna undanþegnar gjaldskyldu eins og verið hefur.
Með þessari breytingu verður rekstraraðilum leyft að losa sig við úrgangsefni í takmörkuðu magni á endurvinnslustöðvunum.
Vakin er athygli á því að allur úrgangur sem berst á endurvinnslustöðvar Kölku með bifreiðum sem bera rauðar númeraplötur og/eða eru merktar fyrirtækjum, er litið á sem gjaldskyldan rekstrarúrgang. Úrgangur frá fyrirtækjum sem að mati starfsmanna Kölku er ekki móttökuhæfur á endurvinnslustöð, verður vísað til móttökustöðvar í Helguvík.
Gjaldtaka á endurvinnslustöðvunum verður samkvæmt rúmmáli.
Gjaldskrár fyrirtækisins má sjá og kynna sér á heimasíðunni, www.kalka.is. Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu fyrirtækisins í síma 421-8010.
Vakin er athygli á að allur úrgangur sem móttekinn er á endurvinnslustöðvum Kölku þarf að vera vel flokkaður.