Gistu fangageymslur vegna ölvunaraksturs
Ökumaður jeppabifreiðar og tveir farþegar hans gistu fangageymslur í nótt eftir að bifreiðinni hafði verið ekið útaf Flugvallarveginum við Efstaleiti um kl. 2 í nótt. Þar sat bifreiðin föst. Ökumaðurinn og farþegar hans voru færðir í fangageymslur og verða yfirheyrðir þegar áfengisvíman rennur af þeim, segir á vef lögreglunnar.