Gistinóttum fjölgar í september
Gistinóttum á hótelum á Suðurnesjum í september síðastliðnum fjölgaði milli ára um 13%, voru 6.600 samanborið við 5.800 í september 2011 samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands.
Gistinætur á hótelum í september á landinu öllu voru 156.000 samanborið við 136.500 í september 2011. Gistinætur erlendra gesta voru um 82% af heildarfjölda gistinátta í september en gistinóttum þeirra fjölgaði um 15% samanborið við september 2011. Á sama tíma voru gistinætur Íslendinga 11% fleiri en árið áður.
Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 16% fyrstu níu mánuði ársins
Gistinætur á hótelum fyrstu níu mánuði ársins 2012 voru 1.421.900 til samanburðar við 1.222.000 á sama tímabili árið 2011. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 18% á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 9%.
Hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.