Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Gistihús Keflavíkur heldur nafni sínu
Föstudagur 2. september 2011 kl. 10:37

Gistihús Keflavíkur heldur nafni sínu

Gistiheimili Keflavíkur kvartaði til Neytendastofu vegna notkunar á firmanafninu Gistihús Keflavíkur. Taldi Gistiheimili Keflavíkur að hætta væri á ruglingi við nafnið Gistihús Keflavíkur og að nafnið væri villandi með tilliti til staðsetningar, þar sem Gistihús Keflavíkur væri staðsett að Ásbrú. Neytendastofa taldi nafnið Gistiheimili Keflavíkur svo almennt að það gæti ekki notið einkaréttar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Einnig taldi stofnunin ekki ástæðu til aðgerða í málinu vegna staðsetningar fyrirtækisins. Var til þess litið að Ásbrú væri skammt frá Keflavík og að svæðið hafi ávallt verið kennt við Keflavík. Þá hafi fyrirtækið upphaflega verið staðsett í Keflavík en hafi síðar fært út kvíarnar að Ásbrú.

Nánar má lesa um málið hér.