Gistihús fyrir bæði fólk og bíla

1. júní sl. var svo opnaður nýr angi í rekstrinum, gistiheimili, til að koma til móts við óskir fólks, er ferðast hefur um langan veg og vill fá að gista, á viðráðanlegu verði, fyrir eða eftir flug. Gefst þannig tækifæri til að hvílast og fara síðan með stuttum fyrirvara í Leifsstöð, sem í tveggja mínútna fjarlægð og vera þannig laus við stressið. Að sögn Guðmundar var mótelið eins og hann kýs að kalla það innréttað með það í huga að hafa það eins þægilegt og heimilislegt og völ er á. Þar eru sjö herbergi, tvö fjölskylduherbergi og fimm tveggja manna herbergi og eru þau öll mjög stílhrein og skemmtileg. Í gistihúsinu er snyrting þar sem hægt er að fara í sturtu, þvottaaðstaða og matsalur þar sem boðið er upp á morgunverðarbakka, á hverjum degi. Það hefur töluvert verið bókað á þeim stutta tíma, sem opið hefur verið og hafa ferðaþjónustuaðilar mikið spurst fyrir og kynnt sér starfsemina. „Gistinguna reynum við að hafa hagkvæma, heimilislega og með þægilegu aðgengi, fyrir okkar gesti", segir Guðmundur og bætti því við að það væri ekki eingöngu fólk sem kæmi langt að sem kæmi og gisti, heldur einnig fólk af höfuðborgasvæðinu sem vildi fá að sofa einum tíma lengur. Boðið verður upp á pakkatilboð fyrir fólk sem gistir og lætur geyma bílinn, auk þess að mögulegt er að fá ókeypis akstur, til og frá flugvellinum, fyrir þá sem ekki eru á bíl.
Guðmundi lýst mjög vel á sumarið og er hann bjartsýnn á að fyrirtækið muni halda áfram að blómstra og finnst ánægjulegt að geta boðið upp á nýjan þátt í þessari skemmtilegu þjónustu.
Þess má geta að Alex er með heimasíðu á netinu þar sem fólk getur kynnt sér betur starfsemi fyrirtækisins. Þar er m.a. hægt á einfaldan hátt að afla sér upplýsinga um bílageymslu, þrif og/eða gistingu. Veffang: http://www.alex.is>www.alex.is. Sími:421-2800, fax:421-4285, netfang:[email protected]