Fimmtudagur 25. apríl 2002 kl. 23:59
Gísli GK 133 varð vélarvana skammt frá Helguvík

Trillan Gísli GK 133 varð vélarvana um 10 sjómílur frá Helguvík seinni partinn í dag. Happasæll KE 94 fékk boð um vandræðin hjá Gísla GK og sigldu þeir að bátnum og drógu til hafnar. Engin slys urðu á fólki en mikið hvassviðri var á þessum slóðum í dag þegar atvikið átti sér stað.