Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Giskaði næstum því rétt
Miðvikudagur 10. september 2003 kl. 13:01

Giskaði næstum því rétt

Á laugardeginum á Ljósanótt bauð verslunin Stapafell upp á getraun þar sem geta átti hve margir Legokubbar voru í stærðarinnar súlu sem staðsett var í versluninni. Alls voru 7.338 kubbar í súlunni og tóku um 300 börn og unglingar þátt í getrauninni. Langt bil var á milli fjölda kubba sem giskað var á í getrauninni, en tölurnar voru frá 100 kubbum og upp í 5 milljónir. Kristinn Gíslason 13 ára úr Keflavík var nálægt því að geta rétt en hann giskaði á að alls væru 7.337 kubbar í súlunni og munaði einungis einum kubbi. Í öðru sæti var Björgvin Björgvinsson 13 ára úr Hafnarfirði en hann giskaði á að 7.211 kubbar væru í súlunni og í þriðja sæti var Elínóra Einarsdóttir 6 ára sem sagði að 7.200 kubbar væru í súlunni.


VF-ljósmynd: f.v. Guðrún Hákonardóttir verslunarkona í Stapafelli, Björgvin G. Björgvinsson, Kristinn Gíslason sem sigraði og Anna María Nílsen amma Elínóru sem varð í þriðja sæti.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024