Geysir Green gefur ekki upp hversu stór hlutur í HS myndi nægja

Ásgeir Margeirsson forstjóri Geysis Green Energy segist í samtali við RUV vona að deila Hafnarfjarðarbæjar og Reykjanesbæjar um yfirráð í Hitaveitu Suðurnesja leysist með samningum. Gunnar Svavarsson bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og stjórnarmaður í Hitaveitu Suðurnesja sagði í fréttum útvarpsins í gær að Hafnfirðingar, sem nú eiga rúm 15% í HS myndu láta sér nægja um 34% eða ráðandi hlut í hitaveitunni eins og Reykjanesbær sem á um 40% hlut nú þegar.
Ásgeir vill ekki gefa upp hvað stór eignarhlutur myndi nægja Geysi Green.