Fimmtudagur 20. apríl 2000 kl. 04:37
Geysiharður árekstur í Keflavík

Ökumaður bifreiðar slapp við alvarlega áverka eftir geysiharðan árekstur í Keflavík um kl. 04 í nótt.Bifreið var ekið á miklum hraða norður Krikjuveg í Keflavík. Á mótum Vesturgötu og Krikjuvegar virti ökumaðurinn ekki biðskyldu og ók upp á gangstétt og yfir gatnamótin. Bifreiðin hafnaði þar á gangstéttarbrún og kastaðist á kyrrstæða bifreið sem síðan kastaðist eina 10 metra. Eignatjón er mikið. Báðir bílarnir eru nýir.Ökumaðurinn var fluttur á sjúkrahús en hann hafði farið með höfuðið í framrúðuna við áreksturinn. Hann er grunaður um ölvun við akstur.VF-ljósmyndir: Hilmar Bragi