Gervigrasið verður í Sandgerði
Fulltrúar B-lista og D-lista í bæjarráði Suðurnesjabæjar hafa lagt fram tillögu í málum gervigrasvallar í Suðurnesjabæ. Tekið var fyrir minnisblað frá íþrótta- og tómstundafulltrúa með tillögum frá samráðsteymi um uppbyggingu- og viðhaldsáætlun íþróttamannvirkja.
„Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að Íþróttamannvirkið gervigrasvöllur í Suðurnesjabæ fyrir bæði lið sveitarfélagsins verði reyst á aðalvellinum í Sandgerði. Allir nauðsynlegir innviðir eru til staðar á aðalvellinum í Sandgerði eins og til dæmis 340 manna stúka, salernisaðstaða fyrir áhorfendur, vélageymsla og plássgott félagsheimili.
Auk þess leggur Bæjarráð til að starfshópur um uppbyggingu íþróttamannvirkja sem þegar hefur verið skipaður af bæjarráði geri þarfagreiningu og skili af sér tillögum um uppbyggingu íþróttarmannvirkja til næstu ára.
Starfshópurinn hafi það að leiðarljósi að jafnræðis skuli gætt milli byggðakjarna sveitarfélagsins þegar kemur að frekari uppbyggingu íþróttamannvirkja.“
Bæjarráð þakkar verkfræðistofunni Verkís ásamt starfsmönnum Suðurnesjabæjar fyrir þeirra framlag í málinu.
Tillaga var samþykkt af fulltrúum B-lista og D-lista. Fulltrúi O-lista í bæjarráði sat hjá.