Gerðardómur höggvi á Helguvíkurhnútinn
Björgvin G Sigurðsson, 1. þingmaður Suðurkjördæmis, spurði Kristján L. Möller formann iðnaðarnefndar á Alþingi í morgun að því hvenær vænta megi niðurstöðu gerðardóms í deilu HS-Orku og Norðuráls um orkuverð til álversins í Helguvík. Einnig spurði hann hvort nefndin hefði upplýsingar um hvaða niðurstöðu mætti helst vænta af dómnum.
„Miklu skiptir að dómurinn um deilu HS orku og Norðuráls höggvi í eitt skipti fyrir öll á Helguvíkurhnútinn. Álver Norðuráls í Helguvík er lang stærsta einstaka atvinnuverkefni á Suðvesturhorninu öllu. Því fylgja þúsundir starfa á byggingatíma. Deilan sem hófst með sölu ríkis og sveitarfélaga á yfirráðum yfir HS orku verður að taka enda. Norðurál og HS orka verða að ná saman. Á meðan allt er í hnút líður fjöldi atvinnulausra einstaklinga fyrir,“ sagði Björgvin á Alþingi í morgun
Kristján Möller tók í sama streng. Hann sagði vonir standa til að gerðardómurinn sem fellur í lok september leysi deiluna þó ekki sé hægt að fullyrða um það fyrr en upp er staðið. „Ég er vongóður um að gerðardómurinn sænski höggvi á hnútinn einsog háttvitur þingmaður Björgvin G. Sigurðsson. Þessari deilu verður að linna. Nú er Kísilverksmiðjan í Helguvík að fara af stað eftir mánuð. Gagnaver Verne er komið aftur af stað og ef álverið er á fullt í haust eru allir þrír fjárfestingarsamningarnir sem gerðir voru um orkuverkefni á Suðurnesjum komnir í gagnið. Það væri mikill sigur og sæi fyrir endann á því mikla og seiga atvinnuleysi sem hefur herjað á svæðið frá því að herinn fór fyrir sex árum,“ sagði Kristján.