Gerðahreppur kaupir land
Nýlega samdi hreppsnefnd Gerðahrepps um kaup á svokölluðu Skeggjastaðalandi. Þar er um að ræða 25 hektara af landi. Hluti landsins er á skipulögðu svæði en stærsti hlutinn er óskiptur.Sigurður Jónsson, sveitastjóri, sagði að á þessu landi væru 25 lóðir sem væru leigðar.„Hreppsnefnd hefur markað þá stefnu að vinna að því að lækka lóðaleigu en algengt er að landeigendur miði sína taxta við prósentu af verkamannalaunum. Hreppsnefnd mun miða sína lóðaleigu við 2% af fasteignamati lóðar. Lóðaleiga mun því lækka um allt að helming“, segir Sigurður. Lóðarleiga fyrir einbýlishús er nú u.þ.b. rúmar 20 þúsund krónur á ári.