HSS
HSS

Fréttir

Gera það gott á ufsaveiðum
Mánudagur 19. nóvember 2007 kl. 15:55

Gera það gott á ufsaveiðum

Nokkrir stærri netabátar hafa að undanförnu verið að gera út á ufsa við suðvesturhornið og hefur afli þeirra verið nokkið góður, af því er fram kemur á fréttavefnum www.aflafrettir.com sem Gísli Reynisson heldur úti.

Fjórir stórir netabátar hafa verið að róa frá Grindavík og gert það ágætt.
Erling KE hefur mest komist í tæp 19 tonn  og var í nú fyrir helgi kominn í 49 tonn það sem af er nóvember,  mest allt ufsa.
Tjaldanes GK hefur mest komist í 25 tonn og er kominn með svipaðan afla og Erling KE.

Þá hefur gengið vel hjá Mörtu Ágústdóttur GK , sem  telst vera kvótalaus, en landar í Grindavík og leggur upp hjá Þrótti.  Aflinn er kominn með hátt í 75 tonn í einungis 5 ferðum og var  stærsta löndun 23 tonn.  Allir þessir bátar eru með ufsa sem meginafla.

www.aflafrettir.com

Mynd úr safni: Löndun í Grindavík. VF-mynd: elg

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn