Gera Grindavík vænni fyrir göngu- og hjólreiðafólk
Á fundi bæjarráðs Grindavíkur í vikunni lagði bæjarstjóri til að frístunda- og menningarnefnd verði falið að hefja vinnu við stefnumörkun um að gera Grindavík vænni fyrir göngu- og hjólreiðafólk. Í Grindavík eru allar vegalengdir stuttar og aðstæður ákjósanlegar fyrir göngu- og hjólreiðafólk.
Nefndinni verði falið að skila tillögum fyrir bæjarráð fyrir lok ágústmánaðar svo hægt sé að taka afstöðu við vinnslu fjárhagsáætlunar.