Gengur illa að fá fólk í aukavinnu - segir Magnús á Réttinum
„Það hefur ekki gengið neitt að fá fólk í kvöldvinnu. Við höfum reynt að ná til skólafólks því þessi vinna hentar því vel og það er hægt að ná sér í fínan pening með skólanum en það gengur ekki neitt,“ segir Magnús Þórisson, eigandi matstofunnar Réttarins í Keflavík.
Magnús taldi það góðan markhóp að ná til og hefur auglýst störfin í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og einnig sett auglýsingar í glugga á Réttinum. Þá hefur dóttir hans talað við marga krakka í FS til að bjóða þeim þessi störf en án árangurs. Svör þeirra voru á þann hátt að þessi störf hentuðu þeim ekki. Um er að ræða kvöldvinnu frá kl. 17 til 19 við afgreiðslu og eldhússtörf. „Ég sá fréttina á vf.is frá Víkurprjóni og sé að ég er að upplifa þetta á svipaðan hátt. Ég spyr bara: Hvað er í gangi hér á Suðurnesjum?“ sagði Magnús.