Bygg
Bygg

Fréttir

Gengur í norðaustan 10-18 með rigningu á morgun
Miðvikudagur 14. febrúar 2007 kl. 08:34

Gengur í norðaustan 10-18 með rigningu á morgun

Á Garðskagavita voru A10 og 3ja stiga hiti kl. 8
Klukkan 6 var austlæg átt, víða 10-15 m/s við N- og A-ströndina, en annars yfirleitt hægari. Dálítil slydda eða rigning á austanverðu landinu, en víða léttskýjað vestantil. Hlýjast var 7 stiga hiti í Skaftafelli, en kaldast 7 stiga frost á Blönduósi.

Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Austan og norðaustan 5-10 m/s, skýjað og dálítil rigning. Gengur í norðaustan 10-18 með rigningu á morgun. Hiti 0 til 5 stig.

Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
A og NA 5-13 m/s, rigning með köflum S-til, en dálítil slydda NA-til, en annars skýjað og þurrt að kalla. Gengur í A og NA 13-20 með rigningu á morgun, einkum austanlands. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost í innsveitum á N-landi.


Mynd: Við Svartsengi í gærkvöld: VF-mynd: Ellert Grétarsson.
Bílakjarninn
Bílakjarninn