Gengur í austanátt á morgun
Veðurspá fyrir Faxaflóa næsta sólarhringinn: Norðaustan 5-10 m/s og léttskýjað. Frost 1 til 10 stig. Gengur í austan 10-15 á morgun, með slyddu eða snjókomu og hita nálægt frostmarki.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á fimmtudag:
Austan og suðaustan 10-18 m/s með snjókomu og síðar slyddu eða rigningu S- og V-lands. Mun hægari vindur á N- og A-landi, bjartviðri og talsvert frost, en þykknar upp og dregur úr frosti síðdegis.
Á föstudag:
Suðaustanátt og rigning eða slydda, en þurrt að mestu N- og NA-lands. Hiti 0 til 7 stig.
Á laugardag, sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Suðlæg átt, rigning eða slydda með köflum sunnan- og vestantil á landinu, annars úrkomulítið. Hiti breytist lítið.
----
VFmynd/elg – Frá Grindavík.