HSS
HSS

Fréttir

Gengið til viðræðna við AV
Laugardagur 26. apríl 2003 kl. 10:41

Gengið til viðræðna við AV

Einkavæðingarnefnd ríkisstjórnarinnar hefur ákveðið að ganga til viðræðna við AV eignarhaldsfélags sem er í eigu starfsmanna Íslenskra aðalverktaka um kaup á 40% hlut ríkisins í fyrirtækinu, samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofu Stöðvar 2.
Stefán Friðfinnsson, forstjóri Íslenskra aðalverktaka, fer fyrir félaginu. Fjórir aðilar buðu í þessi 40%. Jarðboranir, JB byggingarfélag og Trésmiðja Snorra Hjartarsonar, Jókó og AV eignarhaldsfélag.
Nái salan fram að ganga á AV eignarhaldsfélag upp undir 45% í Íslenskum aðalverktökum og næst stærsti eigandinn, sem er fyrirtæki tengt Jóni Ólafssyni, 15%.
Bílakjarninn
Bílakjarninn