Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Gengið á Háleyjarbungu
Mánudagur 21. ágúst 2017 kl. 09:48

Gengið á Háleyjarbungu

-Lagt af stað frá Gunnuhver

Fimmtudaginn 24.ágúst næstkomandi mun Útivist í Reykjanes Unesco Geopark ganga á Háleyjarbungu á Reykjanesi.

Gengið verður á Háleyjarbungu, litla og flata hraundyngju á Reykjanesi. Þar er að finna stóran toppgíg,  20-25 m djúpan. Gangan er um 3 km og við allra hæfi og tekur um 1,5 til 2 klukkustundir. Eggert Sólberg Jónsson, forstöðumaður Reykjanes UNESCO Global Geopark leiðir gönguna.

Public deli
Public deli

Lagt verður að stað frá bílastæðunum við Gunnuhver, fjær Reykjanesvita, klukkan 18:00 en einnig er hægt að nýta bílastæðin nær Reykjanesvita. Gengið verður á Háleyjarbungu og aftur til baka.

Mælst er til þess að fólk klæði sig eftir veðri. Björgunarsveitin Suðurnes gengur með hópnum eins og áður.

Enginn þátttökukostnaður er í ferðina og þátttakendur á eigin ábyrgð.