Gekk í veg fyrir strætisvagn og slasaðist
Tvö umferðarslys urðu í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Í gær ók ökumaður, sem ekki virti stöðvunarskyldu, inn í hlið bifreiðar. Ökumaður þeirrar bifreiðar hlaut áverka á höfði en sem betur fer ekki alvarlega þó.
Þá slasaðist gangandi vegfarandi sem gekk í veg fyrir strætisvagn. Viðkomandi var flutt á Landspítala í Fossvogi en meiðsl hennar reyndust ekki mjög alvarleg.