Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Gegn sjálfsvígum: Kyrrðarstund í Keflavíkurkirkju
Þriðjudagur 8. september 2015 kl. 17:34

Gegn sjálfsvígum: Kyrrðarstund í Keflavíkurkirkju

Í tilefni alþjóðlegs dags sjálfsvígsforvarna fimmtudaginn 10. september verður kyrrðarstund í Keflavíkurkirkju kl. 20:00.

Kyrrðarstundin er í höndum prestanna Elínborgar Gísladóttur, Erlu Guðmundsdóttur og Sigurðar Grétars Sigurðarsonar sem leiða í bæn og flytja hugvekju. Hobbitarnir sjá um tónlistarflutning.

Þorvarður Guðmundsson, aðstandandi segir frá reynslu sinni.

Stundin er öllum opin. Það hefur reynst vel að koma saman og hlusta á hvernig aðrir í sömu sporum hafa unnið sig í gegnum sorgina.

Að lokinni kyrrðarstund gefst fólki tækifæri til eiga samfélag yfir kaffibolla.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024