Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Gefn styrkir Velferðarsjóð Suðurnesja
Þórunn Íris Þórisdóttir tekur við framlaginu frá Herborgu Hjálmarsdóttur. Myndin var tekin þegar framlagið í Velferðarsjóðinn var afhent. VF-mynd: Hilmar Bragi
Föstudagur 20. desember 2013 kl. 09:58

Gefn styrkir Velferðarsjóð Suðurnesja

Kvenfélagið Gefn í Garði hefur veitt myndarlegt framlag til Velferðarsjóðs Suðurnesja. Herborg Hjálmarsdóttir formaður Gefnar afhenti sjóðnum 300.000 krónur sem eru m.a. afrakstur af árlegum jólabasar kvenfélagsins. Þórunn Íris Þórisdóttir, rekstrarstjóri Keflavíkurkirkju, veitti framlaginu viðtöku.

Kvenfélagið Gefn er öflugt kvenfélag í Garðinum. Um 100 konur eru skráðar í félagið og 50-60 eru virkar í starfinu. Árlega veitir kvenfélagið um eina og hálfa milljón króna í styrki til samfélagsmála í Garði og á Suðurnesjum.


 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024