Gefa leigjendum 30% afslátt í jólamánuðinum
Leigufélagið Bríet hyggst gefa leigjendum sínum 30% afslátt af leigu nú í desembermánuði. Leigutökum var tilkynnt þetta bréfleiðis í morgun og ættu þeir að sjá lægri upphæðir en vanalega á greiðsluseðlum í heimabankanum sínum. Þá kemur jafnframt fram í bréfinu að félagið hyggist lækka leiguverð til allra leigutaka sinna varanlega um 4% frá og með 1. janúar næstkomandi.
Með þessu tekur Bríet á sig um helming af hækkun vísitölu neysluverðs það sem af er árinu en leigusamningar eru almennt vísitölubundnir sem leiðir til aukins húsnæðiskostnaðar leigjenda við hraða hækkun verðlags. Leigufélagið taldi brýnt að bregðast við því erfiða efnahagslega ástandi og þeirri miklu verðbólgu sem nú ríkir og koma til móts við leigutaka sína sem verða fyrir áhrifum.
Bríet er sjálfstætt leigufélag sem á og rekur um 250 fasteignir í 34 sveitarfélögum allt í kringum landið. Það er í eigu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og sveitarfélaganna Fjarðabyggðar, Fjallabyggðar og Reykhólahrepps.
Leigufélagið Bríet á 49 eignir í fjórum sveitarfélögum á Suðurnesjum. Flestar eignir eru í Reykjanesbæ eða 21 talsins, næstflestar í Suðurnesjabæ eða 19, þá á leigufélagið sex eignir í Grindavík og þrjár eignir í Vogum. Leigufélagið er að hefja samræður við sveitarfélagið um frekari umsvif á svæðinu.
Eignasafn Bríetar á Suðurnesjum telur 20% af heildarsafni Bríetar með tilliti til fjölda eigna og 25% af fasteignamati safnsins.
Ásta Björg Pálmadóttir, stjórnarformaður Bríetar: „Við vildum leggja okkar lóð á vogarskálarnar vegna þeirra miklu vísitöluhækkana sem hafa orðið á leiguverði á þessu ári. Þar sem útgjöldin okkar hafa ekki hækkað eins mikið á þessu tímabili þá töldum við rými til að fara í lækkanir á leigu. Við vildum nýta það til að aðstoða sem mest fjölskyldurnar sem leigja heimili sín af okkur. Um þessar mundir ríkir mikil óvissa í efnahagsmálum og við vitum að það er ekki gott að fara inn í jólamánuðinn, með öllum þeim útgjöldum sem honum fylgir, með fjárhagsáhyggjur. Við vonum að desember-afslátturinn geri okkar fólki auðveldara að eiga gleðilega hátíð og að varanlega lækkunin, frá og með áramótunum, muni einnig létta því byrðarnar fram á við.“