Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Gefa börnum flugeldagleraugu
Mánudagur 29. desember 2008 kl. 10:20

Gefa börnum flugeldagleraugu

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Því miður sýnir reynslan okkur að um hver áramót verða slys í tengslum við flugeldavörur.  Algengast er að einstaklingar slasist á höndum, andliti og augum og má rekja flest þessara slysa til þess að hvorki er farið eftir grundvallarreglum um notkun flugelda né leiðbeiningum um meðferð þeirra.
 
Augnslysum um áramót hefur fækkað mikið undanfarin ár sem má m.a. þakka aukinni notkun flugeldaglerauga. Þó eru alltaf einhverjir sem þurfa að leita læknis vegna augnslysa og samkvæmt upplýsingum frá slysa- og bráðadeild Landspítala í Fossvogi voru þeir 14 talsins síðustu áramót. Gleraugun geta komið í veg fyrir augnslys og ættu allir að bera þau sama hvort viðkomandi er að skjóta upp eða eingöngu að horfa á.
 
Fikt með flugeldavörur er algengt hjá krökkum og þá sérstaklega strákum. Þeir taka flugelda í sundur, safna púðrinu saman og búa til sínar sprengjur eða taka kökur í sundur og sprengja hvern hólk fyrir sig. Þessi leikur er stórhættulegur og foreldrar verða að vera vakandi og meðvitaðir um það sem börn þeirra eru að fást við þessa daga.
 
Undanfarin sjö ár hafa Blindrafélagið og Slysavarnafélagið Landsbjörg unnið saman að forvörnum til að fyrirbyggja augnslys af völdum flugelda. Nú senda félögin öllum 10 til 15 ára börnum gjafabréf fyrir flugeldagleraugum í samstarfi við Póstinn og Prentsmiðjuna Odda. Með stuðningi þessara fyrirtækja hefur 27.088 börnum verið send gjafabréf fyrir flugeldagleraugum og er það von okkar að þau verði til þess að ekkert þeirra slasist á augum um áramótin.
 
Þessum gjafabréfum má framvísa á öllum flugeldasölustöðum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar til að fá gleraugun afhent.