Gatnagerðargjöld lækki tímabundið um 30%
– gæti orðið til þess að örva byggingaframkvæmdir
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar leggur til að á árinu 2015 verði gjaldskrá gatnagerðargjalda í Reykjanesbæ lækkuð tímabundið um 30%. Þetta kem fram á síðasta fundi nefndarinnar. Lækkun gjaldanna gæti orðið til þess að örva byggingaframkvæmdir í Reykjanesbæ á nýjan leik.
Í tillögunni segir að lækkunin gildi tímabundið á árinu 2015 en þá taki fyrri gjaldskrá gildi að nýju nema annað verði ákveðið. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir tillöguna samhljóða og vísar henni til umfjöllunar bæjarráðs samhliða vinnu við fjárhagsáætlun 2015.