Gasmengunar getur orðið vart í Grindavík
Í dag er vindur að Norðaustan 3-8 m/s, en norðan 8-10 síðdegis við gosstöðvarnar í Meradölum. Gasmengun berst því til suðurs og suðvesturs frá eldstöðvunum, líklega yfir Grindavík. Norðan 8-15 m/s á morgun (föstudag) og gasið berst því í suðurátt.
Í spilaranum hér að neðan er beint streymi sem visir.is er með frá eldgosinu á Youtube.