Gasmengun í brunnum í veitukerfi innan Grindavíkur
Gasmengun mældist við vinnu ofan í brunnum tengdum veitukerfi innan Grindavíkur í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.
Veðurstofan vaktar ekki staðbundna gasmengun innan Grindavíkur. Skoða þarf betur hvort gasmengunin er tengd því að kvika liggur mjög grunnt á svæðinu. Það skal tekið fram að hættuleg gasmengun er meðal þeirra atriða sem nefnd eru í hættumatinu sem nú gildir fyrir Grindavík.