Garðurinn áfram í fremstu röð
Nýr meirihluti tók við stjórnartaumum í Sveitarfélaginu Garði í síðustu viku. Boðað var til bæjarstjórnarfundar að ósk D- og L-lista, sem höfðu náð samkomulagi um að mynda nýjan meirihluta í sveitarfélaginu. Á sama bæjarstjórnarfundi var tekið fyrir erindi frá Kolfinnu S. Magnúsdóttur bæjarfulltrúa sem óskaði eftir lausn frá embætti. Var henni veitt lausn frá embætti til loka kjörtímabils og jafnframt þakkað starf sitt í bæjarstjórn á kjörtímabilinu.
Einar Jón Pálsson var kjörinn forseti bæjarstjórnar Garðs á fundinum. Þá var Gísli Heiðarsson kjörinn formaður bæjarráðs. Nýr bæjarfulltrúi tók sæti í bæjarstjórn en Einar Tryggvason er nýr bæjarfulltrúi í Garði eftir að Kolfinna sagði sig frá störfum í bæjarstjórn. Magnús Stefánsson verður áfram bæjarstjóri í Garði en hann var ráðinn til starfsins í sumar eftir að Ásmundi Friðrikssyni var sagt upp störfum.
Víkurfréttir tóku Einar Jón Pálsson, nýkjörinn forseta bæjarstjórnar Garðs, tali eftir bæjarstjórnarfundinn í Garði. Fyrst spurðum við út í vinnuna við meirihlutamyndunina.
„Það má segja að þessi vinna hafi verið búin fyrir nokkuð löngu síðan, fyrir hálfum mánuði eða þremur vikum. Vinnan var langt komin en við náðum þó ekki saman á endanum, þó svo fréttir væru um það þá að meirihlutinn í Garði væri að falla. Síðan þá hafa verið óformlegar þreifingar. Þegar fréttir komu af því á föstudag að Kolfinna ætlaði að hætta í bæjarstjórn, þá hafði fulltrúi L-listans samband við okkur og við náðum saman,“ segir Einar Jón og bætir við:
„Við töldum það sterkast, í stað þess að bíða eftir því að Kolfinna myndi hugsanlega segja af sér, þá töldum við sterkast fyrir bæjarfélagið, til að fá þar frið og ró, að mynda öflugan meirihluta frá L- og D-lista og vera þá með fimm manna meirihluta ef Kolfinna færi út. Með samstarfi D- og L-lista hefði það ekki áhrif hvort Kolfinna færi í frí eða ekki. Varamaður Kolfinnu í bæjarstjórn væri þá bara bónus fyrir nýtt meirihlutasamstarf. Það var ástæða þess að við stigum þetta skref fyrir bæjarfélagið.
Við gátum ekki hugsað okkur það að það yrði einhver hringlandaháttur hér í Garðinum áfram og þar af leiðandi vildum við taka ábyrga afstöðu fyrir íbúana. Það er nóg komið af fréttum um meirihlutaskipti í Garðinum. Það er kominn nýr meirihluti sem verður til loka kjörtímabils“.
- Hvernig hefur andrúmsloftið verið í bæjarfélaginu frá því í vor, þegar fyrsti meirihlutinn féll?
„Það er ekkert hægt að kvarta yfir andrúmsloftinu á bæjarstjórnarfundum. Fyrir íbúana, þá er þetta ekki sniðugt. Fólk fær framan í sig fréttir, sem hafa birst í blöðum og eru kannski ekki sannar heldur. Það er búið að fella meirihluta áður en hann er fallinn. Hann féll ekki fyrr en nú áðan á bæjarstjórnarfundinum,“ sagði Einar Jón í viðtali við Víkurfréttir eftir bæjarstjórnarfundinn 17. desember sl. þegar meirihlutaskiptin áttu sér stað.
„Uppblásinn fréttaflutningur getur líka verið slæmur. Hann hefur þau áhrif að það er hringlandaháttur og virðist vera óstöðugleiki í stjórn-un. Þar var líka mjög slæmt að geta ekki verið með öflugan starfhæfan meirihluta. Við teljum að hér séu mál sem þurfi að fara að taka á og klára. Það eru hér fullt af verkefnum sem þarf að takast á hendur“.
- Hver verða næstu skrefin?
„Við ætlum að vinna eftir stefnuskrám listanna. Þær eru mjög keimlíkar. Við viljum halda áfram að vinna vel fyrir bæjarfélagið í sátt við bæjarbúa og standa saman í þeim málefnum sem snúa að bæjarfélaginu. Við teljum að það þurfi að berjast fyrir bæjarfélagið“.
- Verður Magnús áfram bæjarstjóri?
„Já, Magnús verður bæjarstjóri og það eru engar breytingar fyrirhugaðar á starfsliði bæjarins. Það heldur áfram að vinna sína góðu vinnu“.
- Munuð þið í nýjum meirihluta þá halda áfram þar sem frá var horfið í vor, þegar þið misstuð meirihlutann?
„Það var samþykkt hér fjárhagsáætlun fyrir fáeinum dögum með öllum greiddum atkvæðum. Fjárhagsáætlun sem D-listinn vann fyrir ári síðan virðist vera að ganga mjög vel eftir. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 er byggð á þeirri vinnu. Framkvæmdir næsta árs eru byggðar á þriggja ára áætlun okkar frá því í fyrra. Við munum fara í framkvæmdir í sveitarfélaginu fyrir 165 milljónir á næsta ári, sem er mjög jákvætt skref fyrir íbúana. Þar er stærsta verkefnið stækkun íþróttamiðstöðvar.
Við þurfum að halda áfram að koma því jákvæða sem er gert hér í bænum á kortið og það verður okkar vinna framundan, en ekki vera að horfa í baksýnisspegilinn. Við erum með öflugt stöndugt sveitarfélag og við stefnum áfram á að vera í fremstu röð,“ segir Einar Jón Pálsson, forseti bæjarstjórnar Garðs í samtali við Víkurfréttir.