Garður: Lækka leigu í íbúðum aldraðra
Bæjarráð í Garði hefur samþykkt að lækka leigu í íbúðum sveitarfélagsins við Melteig í Garði, þar sem eru íbúðir aldraðra. Er gert ráð fyrir að leigan við Melteig samræmist leiguverði í Búmannaíbúðum við Kríuland í Garði.
Samkvæmt tillögu bæjarráðs miðast niðurgreiðslan við 364.- kr. á fermeter hverrar íbúðar. Þá er lagt til að niðurgreiðslan verði uppreiknuð samkv. byggingavísitölu 1. janúar ár hvert.