Garður gerir samning við JG Herragarða ehf
Þann 7. nóvember voru undirritaðir af Sveitarfélaginu Garði samningar við JG Herragarða ehf. um byggingu á 12 sjávarlóðum neðan Garðvegar í landi Gufuskála og Rafnkelsstaða. Lóðirnar eru rúmlega 1 ha og verða byggð á þeim einbýlishús en einnig er möguleiki á byggingu gestahúss og hestshúss á lóðunum. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist eftir áramót.
Mynd: Frá undirritun samninga. Mynd af vef Sveitarfélagsins Garðs.