Garður: Fjórar nýjar kennslustofur teknar í notkun
Næstkomandi fimmtudag fær Gerðaskóli afhentar fjórar nýjar skólastofur til notkunar til viðbótar við þær fjórar sem teknar voru í notkun á síðasta ári. Sex þeirra eru almennar kennslustofur en hinar eru raungreinastofa og myndmenntastofa.
„Þar með er það sem snýr að nemendum tilbúið í þessari glæsilegu byggingu. Við erum byrjaðir á bókasafninu og tónlistarsalurinn er tilbúinn. Síðan verður farið í kennaraálmu og aðstöðu fyrir tónlistarskólann þannig að þetta verkefni er komið vel áleiðis,“ segir Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði.
Þegar upp verður staðið munu nýframkvæmdir við skólann kosta um 900 milljónir og eru þær fjármagnaðar með eigið fé. Um 250 nemendur sækja skólann og var húsakosturinn orðinn verulega þröngur fyrir þennan fjölda. Með framkvæmdunum er skólinn betur í stakk búinn að taka við nýjum nemendum en reiknað er með íbúafjölgun í Garði þegar nýtt álver í Helguvík verður komið í gagnið.
---
Ljósmynd/Oddgeir Karlsson - Gerðaskóli.