Bygg
Bygg

Fréttir

Garðmenn fá yfirdrátt hjá sjálfum sér
Miðvikudagur 16. mars 2011 kl. 09:17

Garðmenn fá yfirdrátt hjá sjálfum sér

Í allri bankasamkeppninni á Suðurnesjum er ódýrara er fyrir Sveitarfélagið Garð að taka yfirdráttarlán úr eigin Framtíðarsjóði frekar en að leita til bankastofnana með yfirdráttarlán. Eins og greint var frá í Víkurfréttum á dögunum fékk bæjarstjóri Garðs heimild til að semja við bankastofnun um allt að 60 milljón króna yfirdráttarlán, þar sem miklar sveiflur eru í tekjum sveitarfélagsins á milli mánaða.


Bæjarstjóri hefur átt fund með þáverandi sparisjóðsstjóra varðandi kostnað við yfirdrátt og ljóst er að hagkvæmara er fyrir bæjarsjóð að taka lán frá Framtíðarsjóði sveitarfélagsins til að mæta sveiflum í tekjum bæjarins á móti föstum kostnaði um hver mánaðamót. Lánið verði greitt til baka í sjóðinn með vöxtum fyrir lok árs.


Fyrir liggur álit frá KPMG endurskoðunarfyrirtækis bæjarsjóðs sem hefur staðfest heimild bæjarins að ganga á sjóðinn innan ársins.


Bílakjarninn
Bílakjarninn