Garðmaðurinn fór í kalt bað 70 milljónum ríkari
Á þriðjudaginn kom þriðji vinningur í EuroJackpot til Íslands og færði eiganda sínum tæpar 70 milljónir. Sá hafði keypt miðann sinn á sölustað, Kjörbúðinni í Garði og fór sjálfur yfir hann.
Hann ætlaði þó ekki að trúa því að hann væri með fimm réttar tölur og vinning upp á tæpar 70 milljónir svo hann rétti konu sinni miðann og bað hana um að staðfesta þetta.
Að því loknu sagðist vinningshafinn hreinlega hafa þurft að fara í kalt bað. Þau hjónin hafa ákveðið að þiggja fjármálaráð sem öllum vinningshöfum stendur til boða og greiða upp húsnæðislánið sitt. Það sem út af gengur verður svo sett í góða ávöxtun og haft sem varasjóður.
„Tilhugsunin um að verða bæði skuldlaus og að eiga varasjóð er algjörlega ólýsanleg“, sagði vinningshafinn glaður.