Bygg
Bygg

Fréttir

Garðhúsgögn og trampólín í skjól
Föstudagur 1. september 2023 kl. 15:01

Garðhúsgögn og trampólín í skjól

En eins og margir vita þá hefur verið gefin út gul viðvörun vegna veðurs. Byrjað er að hvessa á Suðurnesjum og samkvæmt spám þá mun bæta talsvert í frameftir kvöldi.

Lögreglan á Suðurnesjum hvetur fólk til að ganga frá öllu lauslegu eins og garðhúsgögnum, blessuðu trampólínunum að ógleymdum öllum þessum ruslatunnum sem nú eru komnar við hvert hús og fjölbýli.
Eigendur báta eru beðnir um að huga að þeim en stórstreymt verður um helgina og sjávarstaða óvenju há.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Byggingarverktakar eru sérstaklega hvattir til að huga að byggingar- og framkvæmdasvæðum sem þeir bera ábyrgð á og athuga með stillansa og fleira sem getur valdið tjóni.

„Eins og kom fram um daginn þá viljum við eftir fremsta megni komast hjá því að standa í trampolínreiptogi, ruslatunnuhoppi eða garðhúsgagnaeltingarleik í þessum veðrum sem nú er von á í haust og í vetur,“ segir lögreglan í tilkynningunni um leið og fólki er óskað góðrar helgar og gleðilegrar Ljósanætur.