Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

  • Garðhús fimmta deildin í Laut
  • Garðhús fimmta deildin í Laut
Miðvikudagur 14. október 2015 kl. 06:00

Garðhús fimmta deildin í Laut

– fyrstu börnin á nýju deildinni komin í aðlögun

Útistofa við leikskólann Laut í Grindavík var formlega tekin í notkun sl. mánudag og þar með er leikskólinn orðinn fimm deilda. Að því tilefni var opið hús þar sem hin nýja stofa var til sýnis fyrir gesti og gangandi. Frá þessu greinir vefur Grindavíkurbæjar, grindavik.is.

Öll aðstaða er þar til fyrirmyndar en útistofan hefur hlotið nafni Garðhús en kosið var meðal starfsmanna úr þeim fjölmörgu tillögum sem okkur bárust. Síðan kusu Lautarbörn á milli tveggja efstu nafnanna og varð Garðhús fyrir valinu. Deildirnar sem fyrir voru bera allar heiti húsa í nágrenni leikskólans.

Fyrstu nemendurnir byrjuðu síðan í aðlögun með foreldrum sínum strax á mánudaginn og voru bæði börnin og foreldrarnir ánægðir með aðstöðuna. Yngstu nemendurnir verða í Garðhúsum eða árgangur 2014. 1. nóvember verða komnir 16 nemendur og þar með fullsetinn bekkurinn. Deildarstjóri Garðhúsa er Helga Jóna og munu þrír aðrir starfsmenn einnig starfa henni við hlið.

Börnin í Garðhúsum munu ekki eingöngu vera þar en þegar aðlögun lýkur koma þau í aðalbygginguna t.d. þegar sameiginleg söngstund er, uppákomur, hreyfistund á Akri og í listaskála. Einnig munu verða heimsóknir frá nemendum úr aðalbyggingu út í Garðhús.

Með þessari viðbót var komið á móts við aukna eftirspurn eftir leikskólaplássum því eins og allir vita er Grindavík góður bær og svo virðist sem að sá boðskapur hafi borist út fyrir bæjarmörkin því fólk flykkist til Grindavíkur sem aldrei fyrr.

Myndir og texti af www.grindavik.is

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024