Bygg
Bygg

Fréttir

Garðbraut 52 verðlaunagarðurinn í Garði 2002
Fimmtudagur 8. ágúst 2002 kl. 09:59

Garðbraut 52 verðlaunagarðurinn í Garði 2002

Viðurkenningar fyrir fegurstu garða Gerðarhrepps voru afhentar heima hjá eigendum garðanna í gær. Var það Kristjana Kristjánsdóttir formaður fegrunarnefndarinnar sem afhenti eigendum garðanna viðurkenningarnar sem að þessu sinni voru þrír. Verðlaunagarðurinn í ár var Garðbraut 52 en íbúarnir eru Ester Guðmundssdóttir og Sigurður Guðmundsson. Fengu þau verðlaun fyrir fallegt umhverfi og fjölbreyttan gróður á lóð sinni.


Einnig fengu Kristjana P. Kristjánsdóttir og Raymond MCqueen Einholti 7 viðurkenningu fyrir sérlega skemmtilegan og frumlegan garð og Hulda Matthíasdóttir og Magnús Björgvinsson Lyngbraut 16 fyrir snyrtilegan og vel skipulagðan garð.
Fegrunar- og umhverfisnefnd Gerðarhrepps vildi koma á framfæri þökkum og hvatningu til þeirra Garðbúa er hafa unnið og eru að vinna að fegrun og snyrtingu húsa sinna og lóða. Því kjörorð þeirra er „Hrein byggð er fögur byggð“.
Bílakjarninn
Bílakjarninn