Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Gangsettu vélar á 10 ára byggðasafnsafmæli
Laugardagur 26. nóvember 2005 kl. 19:57

Gangsettu vélar á 10 ára byggðasafnsafmæli

Eyðing matvæla frá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli heldur áfram. Í dag kom fullur bíll af matvælum frá verslun Varnarliðsins í sorpeyðingarstöðina Kölku þar sem meðal annars var eytt vörubretti með amerískum „skinkusamlokum“ eða Hot Pockets frá Nestle með skinku og osti.

Einnig var úrval af öðrum matvælum í bílum. Allt fór þetta sömu leið og drykkirnir í gær, til spillis, nema hvað matvælin fara í brennslu.

Það var því góð matarlykt í sorpeyðingarstöðinni í dag sem blandast við sætan gosdrykkjailminn frá því í gær.

Á sama tíma er til það fólk sem á hvorki í sig né á. Svona er þessi veröld í dag.

Efri mynd: Hot Pockets með skinku og osti á leið í brennslu.

Neðri mynd: Flutningabíll varnarliðsins á leiðinni í Helguvík. Tollurinn fylgir fast á hæla bílsins.

VF-myndir: Jón Björn Ólafsson

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024