Gámur með þýfi enn ófundinn
Lögreglan á Suðurnesjum hefur ekki enn fundið gám með bíl og þýfi, sem grunur leikur á að verið sé að flytja úr landi. Frá þessu er greint á Visir.is
Fram kom í fréttum í gærað litháískur ríkisborgari situr í gæsluvarðhaldi eftir að hann var handtekinn við brottför úr landi með þýfi í fórum sínum, í kjölfar ábendingar. Þar var líka bent á þrjá aðra, sem nú er leitað, en mennirnir eru allir grunaðir um að vera viðriðnir umfangsmikla og skipulagða þjófnaðarstarfsemi og innbrot hér á landi, og að hafa ætlað að koma þýfinu úr landi.
Myndin er ótengd fréttinni.